Jón Kristjánsson (andsvar):
Herra forseti. Ég tek undir það að auðvitað þarf að horfa langt fram í tímann varðandi flugmálaáætlun. Hins vegar er það sem horfir við okkur þingmönnum núna að við erum með flugmálaáætlun í höndunum sem gerir ráð fyrir að strax á næsta ári verði ráðist í þessar framkvæmdir. Auðvitað mætti hugsa sér það að endurskoða flugmálaáætlun ef rannsóknir sýndu og það kæmi í ljós að ekki væri vilji að hafa þennan flugvöll í borginni. En þetta er þó það sem við erum að fjalla um núna og þetta sýnir auðvitað ákveðinn vilja stjórnvalda í þessu efni.
Ég endurtek það sem ég sagði í ræðu minni áðan að það er nauðsynlegt að um þetta sé samkomulag og sátt og borgaryfirvöld og stjórnvöld séu samstiga í þessu mikilvæga máli. Ég legg á það mikla áherslu.