Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar):
Herra forseti. Ég vil einungis ítreka það sem ég sagði áður. Auðvitað er óhjákvæmilegt að endurskoða í heild afstöðuna til flugvallanna í hinum nýja Ísafjarðarkaupstað, frá Þingeyri til Ísafjarðar. Á það er einnig að líta að innanlandsflug verður frjálst frá 1. júlí á næsta ári og af þeim sökum tók ég sérstaklega fram að ég óskaði eftir því að samgn. liti til þessa máls.