Flugmálaáætlun 1996--1999

Þriðjudaginn 05. mars 1996, kl. 15:54:41 (3542)

1996-03-05 15:54:41# 120. lþ. 100.4 fundur 365. mál: #A flugmálaáætlun 1996--1999# þál. 13/1996, GHall (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 100. fundur

[15:54]

Guðmundur Hallvarðsson (andsvar):

Herra forseti. Það er alveg rétt sem kom fram hjá síðasta ræðumanni að öryggismálin eru enginn smáþáttur í þessu máli og það verður auðvitað að horfa á hann. En síðast en ekki síst þykir mér sérlega vænt um það hvernig borgarstjóri svaraði þessu máli í Morgunblaðinu vegna þess að væntanlega gerir hann eins og fleiri Reykvíkingar, þó ekki allir í núverandi meiri hluta borgarstjórnar, sér fulla grein fyrir hinu stóra atvinnuspursmáli sem við erum hér að fjalla um.