Erfðabreyttar lífverur

Fimmtudaginn 07. mars 1996, kl. 13:53:37 (3704)

1996-03-07 13:53:37# 120. lþ. 103.7 fundur 117. mál: #A erfðabreyttar lífverur# frv. 18/1996, Frsm. ÓÖH (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 103. fundur

[13:53]

Frsm. umhvn. (Ólafur Örn Haraldsson):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti á þskj. 623 og breytingartillögum umhvn. við frv. til laga um erfðabreyttar lífverur. Frv. er lagt fram til að uppfylla skyldur sem íslenska ríkið tók á sig með EES-samningunum.

Í 74. gr. samningsins er vísað til XX. viðauka en í honum er sérstakt ákvæði um verndarráðstafanir er skulu gilda samkvæmt 73. gr. samningsins. Í XX. viðauka EES-samningsins eru tvær tilskipanir er fjalla um erfðabreyttar lífverur, þ.e. tilskipun ráðins frá 23. apríl 1990, um einangraða notkun erfðabreyttra örvera, og tilskipun ráðsins frá 23. apríl 1990, um þau tilvik er erfðabreyttum lífverum er sleppt af ásettu ráði út í umhverfið.

Markmið frv. er að vernda náttúru landsins, vistkerfi, plöntur, heilsu manna og dýra gegn óæskilegum áhrifum erfðabreyttra lífvera. Helstu ráðstafanir samkvæmt frv. til að ná þessum markmiðum eru að gert er ráð fyrir að óheimilt verði að hefja starfsemi þar sem ætlunin er að fari fram afmörkuð notkun erfðabreyttra lífvera nema fyrir liggi leyfi Hollustuverndar ríkisins. Sækja skal um sérstakt leyfi fyrir hverja tegund. Einnig er slepping, dreifing og markaðsetning erfðabreyttra lífvera óheimil nema að fengnu leyfi Hollustuverndar. Þá er gert ráð fyrir skyldu til að halda sérstaka skrá yfir notkunina. Loks er starfsemi með erfðabreyttar lífverur háð eftirliti.

Þó að umhvn. leggi nokkrar efnisbreytingar til hrófla þær breytingar ekki við þessum grundvallaratriðum frv. heldur miða breytingartillögurnar að því að skýra þær reglur sem eiga að gilda og hnykkja á því sem mikilvægast er á þessu sviði. Ljóst er að þörfin fyrir löggjöf á þessu sviði er mikil og nauðsynlegt er að nokkuð strangar reglur gildi um beitingu erfðatækni. Erfitt er að spá fyrir um framtíð erfðatækni og því er að finna nokkuð víðtækar reglugerðarheimildir í frv. Verður að ætla að það sé nauðsynlegt í þessu tilviki.

Nefndin fékk fjölmarga á sinn fund við umfjöllun frv. og eru þeir taldir upp í nefndaráliti. Þá fékk nefndin einnig umsagnir frá ýmsum aðilum. Mun ég nú gera grein fyrir helstu breytingartillögum sem nefndin leggur til að gerðar verði á frv. á þskj. 624.

Meginbreytingin sem nefndin leggur til að gerð verði á frv. snýr að því ákvæði um að öll framleiðsla og meðferð erfðabreyttra lífvera fari fram á siðferðilega og samfélagslega ábyrgan hátt og í samræmi við grundvallarregluna um sjálfbæra þróun. Erfðatækni er svið þar sem líklegt er að siðfræðileg álitaefni komi upp og þarfnist umræðu og því þótti nefndarmönnum mikilvægt eftir að hafa skoðað málið vel að fram komi í markmiðsgrein laganna að beiting erfðatækni verði í samræmi við almenn siðferðisviðhorf þjóðfélagsins á hverjum tíma.

Í samræmi við þessa viðbót við markmiðsgreinina eru lagðar til ýmsar breytingar á frv. Lúta þær m.a. að því að í skipan ráðgjafarnefndar skv. 6. gr. verði höfð í huga tengsl við sérfræðistofnanir í siðfræði. Einnig er lögð til sú breyting að leyfi til afmarkaðrar notkunar, sleppingar og dreifingar erfðabreyttra lífvera sé háð því að það sé talið siðferðilega réttlætanlegt.

Mjög mismunandi er hvort lög um erfðatækni hafa að geyma ákvæði um siðfræði. Má sem dæmi nefna að ekkert slíkt ákvæði er að finna í dönsku lögunum um erfðatækni en í þeim norsku er að finna ákvæði svipað því sem nefndin leggur til að bætt verði inn í frv. Umhvn. leggur til í breytingartillögum sínum að tekið verði skýrt fram í lagatexta að lögin gildi ekki um afurðir erfðabreyttra lífvera.

Í greinargerð kemur skýrt fram að frv. ef að lögum verður er ekki ætlað að ná til afurða erfðrabreyttra lífvera. Ljóst má vera að margt í daglegu umhverfi okkar telst til afurða erfðabreyttra lífvera, svo sem jurtaolía sem unnin er úr erfðabreyttum plöntum, mjólk úr erfðabreyttri kú o.s.frv. Reglur þær sem frv. hefur að geyma mundu missa marks ef þeim væri ætlað að ná til slíkra afurða.

Til að taka af allan vafa í þessu sambandi leggur umhvn. einnig til að afurðir erfðabreyttra lífvera verði skilgreindar í lagatexta. Einnig gerir nefndin tillögu um að skýrt komi fram í frv. að við framkvæmd laganna skuli höfð í huga sérstaða landsins á norðurslóð. Nokkrar breytingar á skilgreiningu verða lagðar til. Miða þær að því að skýra viðfangsefni frv. betur. Umhvn. leggur til að ráðgjafarnefnd, sem mælt er fyrir um að komið skuli á fót, verði skipuð níu mönnum í stað fimm eins og gert er ráð fyrir í frv. Með því á að tryggja að fleiri sjónarmið komi fram í nefndinni. Einnig eru lagðar til breytingar sem miða að því að skýra frekar verkefni og starfssvið nefndarinnar. Þannig er gert ráð fyrir að við skipun í nefndina verði höfð í huga tengsl við sérfræðistofnanir í náttúrufræði og í siðfræði einnig. Skýrt skal tekið fram að með því er ekki verið að leggja til að hver og einn nefndarmanna sé sérfróður á sviði erfðatækni eða siðfræði heldur að innan nefndarinnar sé til staðar sérþekking á þessum sviðum.

Þá er gerð tillaga um breytingu er miðar að því að auka frumkvæði nefndarinnar þar sem henni er falið að gera tillögur til ráðherra um allt það sem horfir til betri vegar í erfðatækni. Loks er lagt til að nefndinni verði falið að beita sér fyrir fræðslu til almennings um erfðabreytingar en mjög mikilvægt verður að teljast að almenningur hafi tækifæri til þess að fylgjast með þróun í erfðatækni.

[14:00]

Nefndin leggur einnig til þá breytingu að umhvrh. skuli leita umsagnar ráðgjafarnefndarinnar áður en hann setur reglugerðir á grundvelli laganna. Lagt er til að bætt verði inn reglugerðarheimildum annars vegar um fræðslu til almennings um erfðatækni og hins vegar um ábyrgðartryggingar. Við rannsóknir um leyfi til afmarkaðrar notkunar, sleppingu og dreifingu erfðabreyttra lífvera leggur nefndin til þá breytingu að orðið ,,áhættumat`` verði ekki notað heldur verði umsækjendum ætlað að gera í umsókn sinni grein fyrir hugsanlegum afleiðingum afmarkaðrar notkunar erfðabreyttra lífvera á heilsu manna og umhverfi. Þessi breyting er lögð til m.a. með hliðsjón af norsku lögunum um erfðatækni.

Einnig er lagt til að opnuð verði leið fyrir Hollustuvernd til þess að krefjast ítarlegri gagna og fá skýringar á einstökum atriðum frá umsækjendum, t.d. hvað varðar greinargerð um hugsanlegar afleiðingar.

Umhvn. leggur einnig til nokkrar breytingar á leyfisveitingaferli en nauðsynlegt þótti að kveða skýrar á um ýmsa þætti þess ferils. Þannig er í fyrsta lagi lagt til að bætt verði inn í frv. ákvæði um að Hollustuvernd leggi mat á hverja umsókn á grundvelli framkominna gagna og umsagna ráðgjafarnefndar og taki afstöðu til þess hvort veita skuli leyfi. Þá er lagt til að bætt verði inn ákvæði í samræmi við brtt. við 1. gr. um markmið laganna þess efnis að aðeins sé heimilt að veita leyfi sé það siðfræðilega réttlætanlegt.

Loks er lagt til að bætt verði í lögin í samræmi við það sem segir í greinargerð að Hollustuvernd ríkisins skuli hafa eftirlit með og skrásetja þær tegundir erfðabreyttra lífvera sem unnið er úr hverju sinni.

Þá er lagt til að kveðið verði skýrar á um það hvenær unnt er að sækja um leyfi fyrir fleiri en eina sleppingu eða dreifingu í sömu umsókn. Lagt er til að það verði aðeins heimilað ef um er að ræða fleiri tegundir sem öllum er sleppt á sama stað eða sömu tegund sem sleppa á á fleiri stöðum í sama tilgangi og á tilteknum tíma. Miðar þessi breyting að því að gera umsóknarferlið skilvirkara.

Einnig er lögð til breyting sem lýtur að frágangi umsókna. Umsóknir skulu vera þannig úr garði gerðar að þær séu skiljanlegar almenningi og fallnar til kynningar hjá almenningi.

Loks er lagt til að lögbundið verði að Hollustuvernd skuli leita umsagnar Náttúruverndarráðs og rannsóknastofnana sem starfa á því sviði sem umsóknin lýtur að, auk þess sem umsagnar skal leitað hjá aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins. Gert er ráð fyrir nánari útfærslum á formi umsagna og umsagnarfresti í reglugerð.

Þá eru lagðar til breytingar sem miða að því að skerpa ábyrgð þess sem fengið hefur leyfi til sleppingar og dreifingar á erfðabreyttum lífverum eða hefur sótt um slíkt leyfi. Leyfishafa verði þannig gert skylt að tilkynna Hollustuvernd ríkisins um nýjar upplýsingar sem fram kunna að koma um áhættu sem fylgt getur sleppingu eða dreifingu erfðabreyttra lífvera og ef nauðsynlegt er að breyta heimilaðri tilhögun um sleppingu eða dreifingu þeirra. Á grundvelli nýrra upplýsinga er gert ráð fyrir að Hollustuvernd taki afstöðu til leyfis eða leyfisveitingar á ný.

Einnig er lagt til að bætt verði við ákvæði laganna möguleika á að banna eða takmarka markaðssetningu tiltekinna erfðabreyttra lífvera hérlendis, þ.e. að banna megi markaðssetningu ef hún samræmist ekki íslenskum lögum. Haft var til hliðsjónar svipað ákvæði í norskum lögum sem veitir norskum yfirvöldum heimild til að banna eða takmarka markaðssetningu erfðabreyttra lífvera telji þau að markaðssetningin hafi í för með sér hættu fyrir heilsu manna og umhverfi eða hún stríði gegn öðrum markmiðum norsku laganna. Þá er sérstaklega tekið fram í norsku lagagreininni að við leyfisveitingar verði að taka tillit til þess hvort markmiðssetning hafi í för með sér þjóðfélagslegan ávinning eða hvort hún styrki sjálfbæra þróun.

Hvað varðar þann fund sem kallaður er opinber fundur í frv. leggur nefndin til að fundurinn verði kallaður opinn áheyrnarfundur. Fyrirmynd að slíkum fundi er það sem nefnist á Norðurlöndum ,,offentlig höring`` og á ensku ,,public hearing``. Gert er ráð fyrir að heimild verði til að halda slíka fundi. Er það Hollustuvernd ríkisins sem ákveður hvort boðað verði til slíks fundar.

Loks er lagt til að ákvæði til bráðabirgða verði fellt brott þar sem það þykir óþarft.

Herra forseti. Ég hef lokið máli mínu og legg til fyrir hönd umhvn. að frv. verði samþykkt með þeim breytingum sem lagðar eru til á þskj. 624 og ég hef gert nánari grein fyrir. Undir þetta álit skrifa Ólafur Örn Haraldsson, Gísli S. Einarsson, Árni Mathiesen, Hjörleifur Guttormsson, Tómas Ingi Olrich, Ísólfur Gylfi Pálmason og Kristín Halldórsdóttir.