Réttaraðstoð við einstaklinga sem leita nauðasamninga

Mánudaginn 11. mars 1996, kl. 16:14:22 (3757)

1996-03-11 16:14:22# 120. lþ. 104.10 fundur 376. mál: #A réttaraðstoð við einstaklinga sem leita nauðasamninga# frv. 65/1996, dómsmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 104. fundur

[16:14]

Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég fagna því að hv. 13. þm. Reykv. dregur í land með fullyrðingar sínar. Það er málefnalegt og eðlilegt af hv. þm. En ég minni líka á að með því falla allar hinar stóru ályktanir sem af hinni röngu túlkun voru dregnar og sú harða gagnrýni sem sett var fram á frv. af hálfu hv. þm.