Réttaraðstoð við einstaklinga sem leita nauðasamninga

Mánudaginn 11. mars 1996, kl. 18:48:34 (3793)

1996-03-11 18:48:34# 120. lþ. 104.10 fundur 376. mál: #A réttaraðstoð við einstaklinga sem leita nauðasamninga# frv. 65/1996, JóhS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 104. fundur

[18:48]

Jóhanna Sigurðardóttir (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vek athygli á því sem hv. þm. sagði að með þessum frumvörpum væri verið að uppfylla það sem mögulegt væri að gera. Þetta er auðvitað staðfesting á því sem ég og fleiri höfum haldið fram í dag að hér mun ríkisstjórnin láta við sitja og við munum ekki sjá neitt frv. um greiðsluaðlögun á þessu kjörtímabili.