Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Mér er fyllilega ljóst, hæstv. félmrh., að þær mæður eða það foreldri sem hefur forsjána fær í flestum tilvikum sitt meðlag. En meðlagið er ekki nema hluti af framfærslukostnaði barns og mæðurnar eiga oft í erfiðismunum eða það foreldri sem hefur forsjá með að sjá fyrir sér og börnum sínum og þurfa oft að steypa sér í miklar skuldir. Ég er alveg sannfærð um að þær mundu glaðar vilja afskrifa sínar skuldir af hvaða toga sem þær eru, oftast vegna framfærslu barnsins. Það er því mjög óréttlátt ef feður geta sloppið og afskrifað sínar skuldir en ekki mæðurnar eða þeir sem eru með börnin.
Hvað viljum við gera við þá sem ekki greiða meðlög? Ég sagði áðan að ég er alveg sammála því að það má skuldbreyta þessu að einhverju leyti og gera þeim kleift að borga þetta á lengri tíma. En í prinsippinu er óverjandi að fella niður höfuðstól skuldanna að mínu mati. Stundum hafa menn verið settir í fangelsi vegna ógreiddra meðlagsgreiðslna og auðvitað er það notað líka. Ég held að það sé mjög varasamt að slaka á í þessum efnum.