Mannanöfn

Þriðjudaginn 12. mars 1996, kl. 16:18:21 (3831)

1996-03-12 16:18:21# 120. lþ. 105.4 fundur 73. mál: #A mannanöfn# (heildarlög) frv. 45/1996, GGuðbj (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 105. fundur

[16:18]

Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka ábendinguna. Ég kom reyndar inn á þetta atriði í rökstuðningi mínum sem ég vitnaði beint til frá árinu 1991. Ég er alveg sammála hv. þm. og formanni allshn., Sólveigu Pétursdóttur, að það er auðvitað mikilvægt jafnréttismál að konur halda óbreyttu nafni við giftingu.