Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Það var ágætt að fá kjarnann úr gagnrýni hv. þm. Svavars Gestssonar. Ég er ósammála honum varðandi eignarfallið vegna þess að ég treysti foreldrum til þess að velja nöfn við hæfi og ef þau eru erlendir ríkisborgarar þá er eignarfallsákvæðið mjög mikilvægt. Ég hef engar áhyggjur af því að fólk sé að kalla börnin sín Skjunnar eða Skjönnar eða hvað það var sem hv. þm. nefndi. Ég get tekið undir að ég hef vissar efasemdir um millinafnakaflann en ég er samt alveg tilbúin að standa að frv. eins og það er.