Flm. (Sighvatur Björgvinsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég vil fyrst taka það fram að ég hef aldrei sagt að allar aðgerðir sem gripið hefur verið til hafi brugðist. Þvert á móti. Ég hef sagt að sumt hafi tekist en annað ekki. Það væri rétt að gera úttekt á því og fá það fyrir sig lagt hvað hefði lánast af þeim aðgerðum sem gripið hefur verið til og hverjar ekki.
Í öðru lagi minni ég á að ég býst við að svona undir lokin hafi hlýhugur alþýðuflokksmanna til þess sem skrifaði textann eins og hv. þm. sagði, þ.e. Jónasar frá Hriflu, verið öllu meiri en hlýhugur hans eigin flokksmanna. Ég held því að við þurfum ekki að bera neinn kinnroða fyrir sögunni í því sambandi nema síður væri.
Virðulegi forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að segja meira um þetta mál að sinni annað en það að ég lýsi því yfir að ég get verið að mörgu leyti sammála hv. þm. sem hér talaði áðan en vil þó minna á eitt í lokin. Mikill samstarfsmaður, að vísu ekki flokksbróðir, sagði í bæklingi sem hann gaf út fyrir kosningarnar 1987 að innan fjögurra ára yrði það aðalvandamálið í loðdýrarækt á Íslandi að telja peningana. Það hafa því fleiri feilað en þeir sem hv. þm. ræddi um því að ég held að þegar fjögur ár voru liðin hafi komið í ljós að þeir sem höfðu farið út í þessa atvinnugrein af ýmsum ástæðum, m.a. fyrir hvatningu stjórnmálamanna, þurftu því miður að glíma við önnur og stærri vandamál en að telja peninga.