Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég tel að vegna þessarar fyrirspurnar hv. þm. hafi málin skýrst nokkuð í umræðum á undangengnum mínútum og það sé ljóst að ríkisstjórnin mun leggja sig fram um að tryggja að þessi mál megi ná fram að ganga þannig að hin mikla vinna sem ríkisvaldið, sveitarfélögin, þingmenn hér, þingnefndir og ekki síst kennararnir hafa lagt í þetta mál, fari ekki forgörðum. Ég hef þá trú að menn beri gæfu til þess að standa saman um það að málinu verði siglt heilu í höfn.