Gatnagerðargjald

Mánudaginn 18. mars 1996, kl. 18:56:01 (4024)

1996-03-18 18:56:01# 120. lþ. 109.14 fundur 106. mál: #A gatnagerðargjald# (heildarlög) frv. 17/1996, Frsm. KÁ (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 109. fundur

[18:56]

Frsm. félmn. (Kristín Ástgeirsdóttir):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir brtt. á þskj. 716 en við yfirlestur á frv. eftir 2. umr. kom í ljós að um ákveðna tvítekningu að ræða þar sem segir að það ber að fella niður lög um gjöld til holræsa og gangstétta í Reykjavík og fleiri, nr. 42/1911. Í mikilli lagahreinsun sem átti sér stað árið 1990 voru þessi lög felld úr gildi. Við viljum að rétt sé rétt, herra forseti, og leggjum því til að þetta falli út úr frv.