Stéttarfélög og vinnudeilur

Föstudaginn 22. mars 1996, kl. 14:32:52 (4377)

1996-03-22 14:32:52# 120. lþ. 114.1 fundur 415. mál: #A stéttarfélög og vinnudeilur# (sáttastörf, vinnustaðarfélög, vinnustöðvun o.fl.) frv. 75/1996, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 114. fundur

[14:32]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Vegna þessara orða vill forseti taka fram að starfsáætlun þingsins segir ekki frá öðru en þingfundunum sjálfum. Hins vegar er ekki gert ráð fyrir reglulegum nefndarfundum utan hins reglulega fundartíma Alþingis. Formenn nefnda geta að sjálfsögðu boðað til fundar en það er ekki gert sérstaklega að undirlagi forseta þingsins. Þessu get ég ekki svarað á annan hátt.