Stéttarfélög og vinnudeilur

Föstudaginn 22. mars 1996, kl. 16:19:24 (4398)

1996-03-22 16:19:24# 120. lþ. 114.1 fundur 415. mál: #A stéttarfélög og vinnudeilur# (sáttastörf, vinnustaðarfélög, vinnustöðvun o.fl.) frv. 75/1996, SighB (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 114. fundur

[16:19]

Sighvatur Björgvinsson (um fundarstjórn):

Hæstv. forseti. Ég vil þá fara þess á leit við hæstv. forseta, að þegar fundur hefst að nýju verði hæstv. forsrh. viðstaddur svo hægt sé að spyrja hann hvaða viðbrögð hann hyggist viðhafa vegna ályktunar fundar formanna Alþýðusambands Íslands sem honum hafa verði kynntar.