Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar):
Herra forseti. Í því dæmi sem hv. þm. nefndi varðandi lífeyrissjóðsmálin var staðan sú og því hafði verið lýst yfir af hálfu ríkisstjórnar og þar á meðal af minni hálfu, að það stæði ekki til að skerða áunnin réttindi manna með því frv. Hins vegar voru færð fram gild rök fyrir því að frv. í þeim búningi sem það var þá í gæti einmitt leitt til þess að áunnin réttindi yrðu skert. Við þær aðstæður taldi ég alveg útilokað að málið gengi lengra og menn yrðu að fjalla um það, ná um það sátt. Ég hygg að það sé reyndar svo að flestir þeir sem að málinu koma telji nauðsynlegt að lífeyrismál opinberra starfsmanna komi til sérstakrar athugunar. Mál eins og þau standa þar nú geta ekki gengið fram með óbreyttum hætti. En það þarf að skoða og gæta þess að ekki sé verið að taka af mönnum áunninn rétt þeirra, ég gat þess sérstaklega.
Varðandi hitt málið, athugasemdir Alþýðusambandsins og frv. sem hér er til meðferðar, þá er það alveg ljóst að í meðferð nefndarinnar hefur enginn útilokað breytingar á frv. Það hefur hæstv. félmrh. ekki gert. Það hefur enginn gert. Ég hef þegar sagt hér að menn muni skoða þau atriði sem bent hefur verið á sérstaklega og nefnt bréf sem hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir vakti athygli á, sem ég tel ekki breyta málinu en verði að skoða sérstaklega. Auðvitað verða athugasemdir Alþýðusambands Íslands og Vinnuveitendasambandsins skoðaðar rækilega í nefndinni. Þannig að við munum leita ákveðinna leiða til þess að sem mest sátt geti ríkt um málið. En það er ætlun ríkisstjórnarinnar að þetta mál nái fram að ganga nú í vor.