Stéttarfélög og vinnudeilur

Föstudaginn 22. mars 1996, kl. 17:28:20 (4418)

1996-03-22 17:28:20# 120. lþ. 114.1 fundur 415. mál: #A stéttarfélög og vinnudeilur# (sáttastörf, vinnustaðarfélög, vinnustöðvun o.fl.) frv. 75/1996, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 114. fundur

[17:28]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Forseti vill geta þess um framhald þinghaldsins að hann mun meta stöðuna núna upp úr sex. Það er engin samstaða um framhald þessa. Það má kannski segja að það sé sátt um að halda áfram en þó í ósætti ef það má orða það svo. En forseti mun meta stöðuna núna upp úr kl. sex.