Stéttarfélög og vinnudeilur

Föstudaginn 22. mars 1996, kl. 17:56:36 (4422)

1996-03-22 17:56:36# 120. lþ. 114.1 fundur 415. mál: #A stéttarfélög og vinnudeilur# (sáttastörf, vinnustaðarfélög, vinnustöðvun o.fl.) frv. 75/1996, HjálmJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 114. fundur

[17:56]

Hjálmar Jónsson (andsvar):

Herra forseti. Það er einmitt þannig að nú er málið komið í ákveðinn farveg og fer eftir þeim farvegi. Það verður hlustað grannt eftir skoðunum og áliti. Hæstv. ráðherrar hafa lýst því yfir og kallað til aðila vinnumarkaðarins og þá aðila sem við teljum ástæðu til að hafa samband við og hafa samband við okkur til þess að ljúka málinu með þokkalegri sátt. Að öðru leyti segi ég amen eftir efninu.