Samkomulag um þinghaldið

Fimmtudaginn 11. apríl 1996, kl. 10:36:07 (4525)

1996-04-11 10:36:07# 120. lþ. 116.91 fundur 239#B samkomulag um þinghaldið# (aths. um störf þingsins), Forseti StB
[prenta uppsett í dálka] 116. fundur

[10:36]

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Vegna ræðu hv. 8. þm. Reykv. vill forseti segja að að sjálfsögðu er afar mikilvægt að samkomulag náist um þingstörfin. Forseti hefur átt ágæta fundi með formönnum þingflokka og þess er að vænta að á þeim fundarhöldum verði framhald. Eins og venja er verður allra leiða verði leitað til að ná samkomulagi. Að öðru leyti telur forseti ekki ástæðu til að gefa neinar yfirlýsingar á þessu stigi málsins.