Lyfið interferon beta við MS-sjúkdómi

Mánudaginn 15. apríl 1996, kl. 15:19:17 (4709)

1996-04-15 15:19:17# 120. lþ. 118.2 fundur 243#B lyfið interferon beta við MS-sjúkdómi# (óundirbúin fsp.), SJóh
[prenta uppsett í dálka] 118. fundur

[15:19]

Sigríður Jóhannesdóttir:

Hæstv. heilbrrh. Ég vil leyfa mér að efast um það að nefnd, þó að það séu taugalæknar á vegum heilbrrn., sem aldrei hefur séð viðkomandi sjúklinga hafi meira vit á því hverjir þurfa á þessu lyfi að halda og hverjum mundi koma það að gagni heldur en þeir læknar sem hafa annast alla þessa sjúklinga og mælt með því að þeir fengju lyfið.