Minkalæður handa bændum í Skagafirði

Mánudaginn 15. apríl 1996, kl. 15:21:28 (4712)

1996-04-15 15:21:28# 120. lþ. 118.2 fundur 244#B minkalæður handa bændum í Skagafirði# (óundirbúin fsp.), forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 118. fundur

[15:21]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Herra forseti. Byggðastofnun er ekki rétt eða skylt samkvæmt lögum að bera þess háttar ákvörðun sérstaklega undir mig. Ég er hins vegar sannfærður um það og hef það traust á forráðamönnum stjórnar Byggðastofnunar að þeir muni ekkert gera sem verður stofnuninni eða mér eða ráðuneytinu til minnkunar.