Forseti (Ragnar Arnalds):
Borist hefur eftirfarandi bréf, dagsett 15. apríl 1996.
,,Þar sem ég get ekki sótt þingfundi í næstu tvær vikur af persónulegum ástæðum leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþingmaður Samtaka um kvennalista í Reykjavík, Þórunn Sveinbjarnardóttir stjórnmálafræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni. Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Guðný Guðbjörnsdóttir, 19. þm. Reykv.``
Kjörbréf Þórunnar Sveinbjarnardóttur hefur verið rannsakað og samþykkt. Hún hefur hins vegar ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.