Kristín Halldórsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég ætla ekki að blanda mér í þær deilur sem kristölluðust í orðaskiptum hér áðan. En ég sé mig knúna til að gera athugasemd við orðaval hæstv. ráðherra þar sem hann tók mjög sterkt til orða og margítrekaði að nefndarmenn hefðu hafnað öðrum leiðum en þeirri sem fram kemur í stjórnarfrv. Ég lít ekki svo á að allir nefndarmenn hafi hafnað öðrum leiðum. Mér finnst það of sterkt til orða tekið. Þetta var málamiðlun, þetta var sú leið sem menn urðu ásáttir um að hægt væri að ná samstöðu um. En það er ekki þar með sagt að öllum öðrum leiðum hafi verið hafnað.