Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):
Herra forseti. Það er ekki meiningin að hafa starfsemi Húsnæðisstofnunar lausa í böndum. Það vil ég að komi alveg skýrt fram. Héðan af verða veðflutningar, ef leyfðir verða, háðir samþykki stjórnar stofnunarinnar. Aðrir veðflutningar eru héðan af óheimilir. Stjórnsýsluendurskoðun stendur yfir á stofnuninni og ég ætla að bíða og sjá hvað út úr henni kemur áður en fleiri ráðstafanir verða gerðar.