Neyðarhjálp vegna fátæktar

Miðvikudaginn 17. apríl 1996, kl. 14:45:22 (4892)

1996-04-17 14:45:22# 120. lþ. 120.7 fundur 370. mál: #A neyðarhjálp vegna fátæktar# fsp. (til munnl.) frá félmrh., GÁ
[prenta uppsett í dálka] 120. fundur

[14:45]

Guðni Ágústsson:

Hæstv. forseti. Það er ekki rétt hjá hv. þm. að fátæktin sé afstæð. Alla vega er það svo í mínum huga að ég sé hana alltaf eins og geri kröfur til þess að minn flokkur og ríkisstjórnin taki á málefnum þeirra sem erfitt eiga. Þó ekki verði öllum bjargað þá er það mikið verk að hreinsa flórinn eftir Alþfl.