Viðskiptabankar og sparisjóðir

Mánudaginn 22. apríl 1996, kl. 22:34:40 (5121)

1996-04-22 22:34:40# 120. lþ. 124.13 fundur 232. mál: #A viðskiptabankar og sparisjóðir# (eiginfjárkröfur, innstæðutryggingar o.fl.) frv. 39/1996, Frsm. meiri hluta VE (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 124. fundur

[22:34]

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég tel það eðlilega ósk hjá hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni að nefndin kíki aftur á málið milli 2. og 3. umr. Ég er sannfærður um að þá mun hann með góðri samvisku geta staðið að þessu máli. Þá þarf það ekki að vefjast fyrir honum lengur frekar en öðrum hv. þingmönnum.