Forseti (Sturla Böðvarsson):
Forseti hugðist næst láta fara fram atkvæðagreiðslu um brtt. frá meiri hluta efh.- og viðskn. á þskj. 705, 4.--12. tölulið. Nú hefur forseta borist ósk um að 10. liður verði borinn upp sérstaklega. Forseti mun því fyrst bera upp 4.--9. tölulið, þá 10. lið og loks 11.--12. lið brtt. Að því loknu fer fram atkvæðagreiðsla um 4.--24. gr. frv., svo breyttar.