Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (andsvar):
Herra forseti. Það er aðeins út af ummælum hv. þm. að það sé einungis áhugamál okkar Íslendinga að hafa nauðsynlegan varnarviðbúnað hér á landi og það sé ekkert áhugamál annarra þjóða. Það ekki rétt. Það er almenn skoðun innan Atlantshafsbandalagsins að hér þurfi að vera lágmarks viðbúnaður. Það er jafnframt skoðun Bandaríkjamanna. Þannig að um þetta ríkir ágætis sátt. Það er út í hött að mínu mati að halda því fram að þessar kröfur séu settar fram eða þessi niðurstaða sé fengin í ljósi áhuga á efnahagslegum hagnaði Íslendinga. Svo er alls ekki og ég vil að það sé alveg skýrt í þessum umræðum.
Að því er varðar Ísland sem kjarnokuvopnalaust og efnavopnalaust svæði þá er stefna Íslendinga og íslenskra stjórnvalda mjög skýr í þeim efnum og hefur alltaf verið, að hér séu hvorki kjarnorkuvopn eða efnavopn. Þessari stefnu hefur verið fylgt mjög fast fram. Um það hefur verið rík samstaða á Alþingi. Það sem ég hef hins vegar sagt er að ég tel að það frv. sem hér hefur verið flutt hjálpi ekki í þessu máli og það muni ekki verða til þess að færa okkur nær því marki að losna við kjarnorkuvopn og efnavopn í heiminum. En það breytir því ekki að það er stefnan að hér verði ekki kjarnorku- og efnavopn. Þetta frv. samrýmist ekki skuldbindingum okkar innan Atlantshafsbandalagsins hvort sem okkur líkar betur eða verr. Svo á við um aðrar þjóðir Atlantshafsbandalagsins enda hefur slík löggjöf ekki verið samþykkt eða flutt í öðrum ríkjum Atlantshafsbandalagsins. Svo einfalt er það mál þó ég virði að sjálfsögðu þann vilja sem kemur fram í þessu frv. Hér eru aðstæður bara allt aðrar en á Nýja-Sjálandi sem mikið hefur verið vitnað til. Það er alveg út í hött að mínu mati að yfirfæra aðstæður þar yfir á þennan heimshluta.