Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég vil nú lýsa furðu minni yfir þeim ummælum sem þessi forustumaður Flugleiða hefur haft við hv. þm. Það hefur verið haft náið samstarf við þá um þetta mál og það hefur verið grundvallarforsenda allan tímann í þessari vinnu að það verði ekki röskun á núverandi fyrirkomulagi áætlunarflusg flugs Flugleiða hf. Ég veit ekki betur en þannig hafi verið unnið allan tímann og þess vegna er það afar undarlegt ef einhver forustumaður Flugleiða hefur lýst slíku yfir í samtali við hv. þm.
Hér er að sjálfsögðu um mjög pólitískt mál að ræða jafnframt. Það varðar ekki bara hagsmuni flugfélagsins Flugleiða þó ég vilji taka fullt tillit til þeirra. Það varðar það hvort við ætlum að vera með í norræna vegabréfasambandinu áfram, hvort við ætlum að hafa samstarf við aðrar þjóðir Vestur-Evrópu um þessi mál eða hvort við ætlum að einangra okkur frá þeim.
Það er gjarnan sagt að þetta sé bara spurningin um að sýna passa. Svo er talað um að þetta sé svona spurning um að setja hendina í vasann og taka upp vegabréfið og þar með sé málið leyst, um þetta snúist málið, að allt þetta gangi út á það að spara mönnum að rétta vegabréfið inn um einhverja lúgu. Það er langt í frá. Ég fullyrði að ef Íslendingar ætla að standa utan við þetta þá munu þeir einangrast allverulega. Hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Þeir sem vilja standa að því bera mikla ábyrgð. Þó ég vilji taka mikið tilliti til Flugleiða þá er ég ekki þeirrar skoðunar að þeir eigi að ráða þessu máli. En ég undrast að slík ummæli skuli vera eftir þeim höfð. Þau hljóta að byggja á misskilningi.