Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (andsvar):
Herra forseti. Auðvitað hefur átt sér stað athugun á því, á vegum Seðlabanka, Þjóðhagsstofnunar og viðskrn. hver áhrifin yrðu af því að hin sameiginlega mynt yrði tekin upp. Ég man eftir því að Alþfl. beitti sér fyrir því í fyrrv. ríkisstjórn að íslenska myntin yrði bundin við ECU og hæstv. þáv. viðskrh. taldi það mjög mikilvægt að binda myntina við ECU. Við gagnrýndum þessa stefnu og töldum hana vera alveg fráleita. (Gripið fram í: Ekki form. efh.- og viðskn.) Með þessu var í raun og veru Alþfl. að lýsa því yfir að það væri rétt að ganga inn í þetta myntsamstarf bara strax (JBH: Nei.) og hengja sig endanlega aftan í ECU hvað svo sem á gengi. Þannig að ég var nú ekki var við að það þyrfti að fara fram mikill undirbúningur að þeirri ákvörðun. Henni var nú sem betur fer breytt mjög fljótt eftir það og tekin upp önnur stefna í málinu í þáv. ríkisstjórn. Auðvitað þarf að fara vel í gegnum þessi mál og ég lýsti því að það fer fram umræða innan EFTA hver yrðu áhrif af hinni sameiginlegu myntstefnu Evrópusambandsins. Það er náttúrlega alveg ljóst að við getum mikið lært af þeirri umræðu sem fer fram í öðrum löndum, m.a. á Norðurlöndum, þannig að auðvitað er verið að fylgjast með þessum málum, hv. þm. Jón Baldvin Hannibalsson, og reyna að gera sér grein fyrir því sem þarna kann að gerast. Auðvitað er það skylda okkar, það er alveg rétt (JBH: Spurningin er um kerfisbundna vinnu.) hjá hv. þm. Kerfisbundna vinnu, ja, sjálfsagt má deila um það hversu kerfisbundin hún er en ég fullyrði að þessi vinna fer fram og það verða væntanlega tækifæri til þess að ræða þau mál betur síðar.