Frsm. 2. minni hluta menntmn. (Lúðvík Bergvinsson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Það sem ég var að leita eftir í mínu andsvari er hvort fyrir liggi einhverjir útreikningar á því hver raunverulegur kostnaður er af því að skrásetja nemanda. Er raunverulegur kostnaður 24 þús. kr. af því að skrásetja nemanda í háskólann? Ef svo er, hvaða útreikningar liggja þá nákvæmlega því að baki?