Ágúst Einarsson:
Herra forseti. Það er eðlilegt að það sé spurt um vinnubrögð hér næstu vikurnar. Það hefur verið upplýst að frv. um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna er langt komið í þingvinnslu á meðan rétt er hafin vinna við frv. um stéttarfélög og vinnudeilur. Það hefur heyrst að ríkisstjórnin ætli sér að knýja fram þessi frv. en ég bendi á afstöðu allra stjórnarandstöðuflokkanna og verkalýðshreyfingarinnar um að þessi mál verði dregin til baka. Það er augljóst að hér er að skerast mjög í odda með mönnum. Ég hef af þessu verulegar áhyggjur, ekki bara vegna efnis málsins sem hér á að fara að lögfesta heldur líka af vinnubrögðum í framtíðinni. Á það hefur verið bent að frv. um réttindi og skyldur fylgir nokkurra sentimetra þykkur bandormur sem ekki er farið að fjalla um og fær þá líklega ekki eðlilega þingmeðferð. Þetta eru vinnubrögð sem eru ekki góð. Það er mjög brýnt að þessar athugasemdir stjórnarandstæðinga um að menn setjist niður og reyni að komast að samkomulagi um hvernig verði unnið að þessum málum verði teknar alvarlega. Ég bendi á það ástand sem er að skapast hér, að öll stéttarfélög í landinu og verkalýðsfélög hafa risið upp til andstöðu við þessi frv. Ég minni á það að 1. maí er í næstu viku og ég vara við afleiðingum þess ef menn ætla að halda fast við þá stefnu sem var upprunalega boðuð. Það er mjög eðlileg krafa, herra forseti, að nú þegar sé kynntur forgangslisti ríkisstjórnarinnar þannig að stjórnarandstaðan sjái hvaða mál það raunverulega eru sem ríkisstjórnin ætlar sér að afgreiða á þessu þingi. Stjórnarandstaðan veit mætavel að ríkisstjórnarflokkarnir hafa meiri hluta á þingi og afgreiða mál í skjóli þess eða með tilstilli meiri hluta síns, lýðræðið er þannig, en það er líka eðlileg krafa af okkar hálfu að fá að vita nákvæmlega um fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar, ekki síst með tilliti til þess hve alvarleg mál eru á ferðinni sem hún ætlar sér að knýja í gegn.