Frsm. meiri hluta allshn. (Sólveig Pétursdóttir) (andsvar):
Virðulegi forseti. Það var alls ekki ætlun mín að vera með neina útúrsnúninga í þessu máli og ég skil fullkomlega þau rök sem koma fram í nál. 1. minni hluta en ég var hins vegar að vitna til þess hvað orðið foreldri þýðir í orðabók þegar því er flett upp og það er faðir og móðir.