Frsm. meiri hluta allshn. (Sólveig Pétursdóttir) (andsvar):
Virðulegi forseti. Það er auðvitað hárrétt ábending hjá hv. þm. að það er rétt að fara varlega í að telja sig hafa höndlað allan sannleikann í þessu máli því að svo margar siðferðilegar spurningar vakna við meðferð þess. En þetta er enginn misskilningur hjá mér varðandi brtt. hv. þm. vegna þess að ekki er hægt að aflétta nafnleyndinni bara gagnvart því barni sem verður til með þeim hætti vegna tilvistar kynfrumugjafans. Það er ekki hægt að koma aftan að mönnum seinna meir, mönnum sem hafa kannski staðið í þeirri meiningu að það væri nafnleynd.