Valgerður Sverrisdóttir (andsvar):
Hæstv. forseti. Þrátt fyrir það að Norðmenn hafi þótt nokkuð íhaldssamir á ýmsum sviðum og m.a. í sambandi við mál sem þessi sem varða siðferðilegar spurningar, þá er sæðisgjöf heimil í Noregi en reyndar er egggjöf ekki heimil samkvæmt upplýsingum sem ég hef. Það er ekki heimilt að fá eggkynfrumu að gjöf samkvæmt þeim lögum sem þar hafa nýlega verið samþykkt. Þetta er samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef undir höndum. Af því að hv. þm. nefndi Svíþjóð, þá var það svo fyrir nokkrum árum að nafnleynd á kynfrumugjöfum var aflétt og það hafði það í för með sér að það dró mjög úr kynfrumugjöfum. Svíar hafa því lent í vandræðum og hafa sótt verulega til Danmerkur til þess að fá kynfrumur með nafnleynd. Ég efast ekkert um það, þó við séum ekki fyrst og fremst að tala um nafnleynd, ég og hv. þm., að ef sú stefna yrði tekin hér að nafnleyndin yrði ekki lengur til staðar þá yrði það þannig í framkvæmd að konur mundu fyrst og fremst fara til Danmerkur til að fá þá þjónustu sem þar er boðið upp á, með nafnleynd. Þetta er nú það sem við höfum fengið upplýsingar um í hv. allshn. og ég get tekið það fram eins og hv. þm. að þegar ég tala hér þá tala ég ekki fyrst og fremst sem formaður þingflokks framsóknarmanna heldur sem þingmaður.