Flm. (Guðmundur Hallvarðsson) (andsvar):
Virðulegur forseti. Hv. þm. talaði um það að ég hefði ekki tekið nógsamlega undir með ákveðnum fögnuði yfir þeirri samstöðu sem lýst var við þingsályktunartillöguna. Ég skal þá segja það að ég fagna þeim ummælum sem hér hafa fallið um tillöguna og þykir vænt um að hafa stuðningsmann mér við hlið.