Frsm. allshn. (Sólveig Pétursdóttir) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég vil í örstuttu máli svara ræðu hv. þm. Svavars Gestssonar. Ég byrja á að mótmæla því að ekki hafi verið gætt heildarsjónarmiða hjá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu við meðferð þessa máls. Í þriggja manna nefnd er samdi þetta frv. var mjög mikil vinna lögð í málið. Það er líka rétt að ítreka að formaður mannanafnanefndar átti sæti í nefndinni.
Varðandi Hagstofuna er alrangt að ekki hafi verið leitað eftir áliti þeirra. Bæði var leitað eftir umsögn þeirra er frv. var í samningu. Ég veit ekki betur en að biðtími hafi verið margar vikur í því sambandi. Þá var einnig beðið um umsögn þeirra í allshn. og að lokum voru þeir kallaðir á fund nefndarinnar. Þar komu fram tillögur um breytingar af þeirra hálfu og allshn. féllst á flestar þær breytingar og tillögur sem þeir komu með. Ég skil því ekki þessar fullyrðingar hjá fulltrúum Hagstofunnar hvað þetta snertir.
Ég hef fengið þetta bréf í hendur sem hv. þm. talaði um og gæti í sjálfu sér svarað henni líka ítarlega en það þjónar e.t.v. ekki tilgangi þar sem nú er komin fram brtt. um að skipuð sé þriggja manna nefnd er fylgist með framkvæmd laganna. Það er í sjálfu sér í samræmi við yfirlýsingu hæstv. dómsmrh. við atkvæðagreiðslu við 2. umr. um frv. og tel ég sjálfsagt að skoða þessa tillögu með velvilja.