Hjálmar Jónsson (andsvar):
Herra forseti. Ég tek undir þau orð að það er athyglisvert að ekki hafi komið umsögn frá Hagstofu Íslands til hv. allshn. og tel það ámælisvert að ekki sé auðveldara að senda formlegri fastanefnd þingsins umsögn heldur en að senda til einstakra þingmanna. Vissulega er gott að hv. þingmenn hafi gott samband við stofnanir ríkisins en það er nauðsynlegt einnig að menn virði svars þær nefndir þingsins sem óska eftir slíku.
Íslensk málnefnd hefur haft sömu möguleika og aðrir meðan málið var til meðferðar til þess að svara og einnig að koma með ósk um að þeir vildu að málið yrði betur skoðað. Þetta er iðulega sagt. Það þarf að fara betur yfir málið. Það þarf að fara ofan í saumana á því. Við fáum hins vegar aldrei að vita, hvað það er, hvaða atriði það eru sem viðkomandi vill að farið sé betur yfir. Þeim hefur öllum verið svarað og ekkert stendur í raun og veru eftir af málflutningi andstæðinga þessa frv.