Guðný Guðbjörnsdóttir:
Virðulegi forseti. Tilefni þessarar umræðu er samningur menntmrn. við Íslenska menntanetið ehf. um að kaupa menntatengda þjónustu fyrirtækisins. Mér er ekki ljóst hvort þingheimur gerir sér grein fyrir því að Íslenska menntanetið með frumkvöðulinn Pétur Þorsteinsson á Kópaskeri í fararbroddi hefur unnið það afrek að samtengja yfir 90% skóla landsins í þessu neti. Engu öðru landi í heiminum hefur tekist að ná svona langt. Svíar hafa t.d. aðeins samtengt um 25% sinna skóla á þennan hátt og þeir eru núna að leggja í milljarða kr. kostnað í þessu skyni. Á meðan erum við að fárast yfir tveimur tugum milljóna. Í fréttatilkynningu frá menntmrn. frá 23. apríl segir m.a., með leyfi forseta:
,,Fjárhagsstaða Íslenska menntanetsins hefur verið mjög slæm og nýlega fékk fyrirtækið greiðslustöðvun. Ef rekstur fyrirtækisins hefði lagst niður hefði Internet-þjónusta við aðila í menntakerfinu stöðvast. Skólar, nemendur og kennarar hefðu misst póstföng sín og netaðgang. Allir vefir á menntanetinu hefðu orðið sambandslausir. Allir póstlistar sem reknir eru á Íslenska menntanetinu hefðu orðið óvirkir og fjarnám nokkur hundruð einstaklinga hefði lagst niður.``
Þar er m.a. átt við það merkilega fjarnám sem nú á sér stað í Kennaraháskóla Íslands. Það kemur einnig fram í þessari fréttatilkynningu að samvinna hefur verið höfð við Samband íslenskra sveitarfélaga um framgang málsins og mun það eiga aðild að stjórnun og rekstri menntanetsins.
Herra forseti. Kennslufræðilegur þáttur þessa máls er svo mikilvægur að það hlaut aðeins að vera spurning um hvenær en ekki hvort menntmrn. kæmi inn í þetta mál og tæki við stjórn Íslenska menntanetsins. Mér finnst það mjög eðlilegt að fela Kennaraháskóla Íslands málið. Þar með er ég alls ekki að segja að það eigi ekki að bjóða út tæknilegar hliðar þessa máls ef það er spurning um samkeppni eða annað slíkt, en kennslufræðilegur þáttur málsins hlýtur að vera í höndum menntamálayfirvalda.
Að mínu mati er Íslenska menntanetið dæmi um tæknilegt undur sem hér hefur þróast til heilla fyrir skólakerfið í landinu. Það ber að varðveita og bæta með því að menntamálayfirvöld komi nálægt þessu og taki stjórnina í sínar hendur. Ég vona að hv. fjárln. verði við þeirri beiðni að af þessum kaupum geti orðið.