Álag á vörugjald af millifrakt í alþjóðaflutningum

Miðvikudaginn 08. maí 1996, kl. 16:14:20 (5829)

1996-05-08 16:14:20# 120. lþ. 133.8 fundur 453. mál: #A álag á vörugjald af millifrakt í alþjóðaflutningum# fsp. (til munnl.) frá samgrh., samgrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka] 133. fundur

[16:14]

Samgönguráðherra (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Ég vil ítreka það sem ég sagði áðan. Ég þekki ekki þetta dæmi um Grænlendingana. Þetta mál kom upp fyrir um tveim árum ef ég man rétt og þá munaði ekki því sem hér hefur verið lýst. Ég hlýt því að vera að tala um eitthvert annað atvik eða annað tilvik. Mér finnst sjálfsagt að kynna mér tiltæk gögn sem hljóta að vera frá þessu ári eða þá kannski síðari hluta sl. árs. En síðast þegar þetta mál kom upp með Grænlendingana bar miklu meira á milli en sem nemur þessu vörugjaldi.