Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson) (andsvar):
Hæstv. forseti. Eins og hv. þm. veit þá liggja þessar reglur enn ekki fyrir. Það má segja um þetta mál að það sé nokkuð einstakt að því leyti til að það er verið að uppfylla eitt skilyrði sem hv. þm. telur mjög mikilvægt. Það er einmitt að Alþingi hafi löggjafarvaldið. Það er nefnilega þannig að um ýmsa þætti sem snerta vinnumarkaðinn, hefur oft verið samin af aðilum utan Alþingis. Síðan höfum við alþingismenn verið látnir standa frammi fyrir einhverjum pakka sem við höfum ekki getað sagt annað en já eða nei við og ekki mátt breyta starfkrók. Ég vil vekja athygli hv. þm. á því að meiri hluti efh.- og viðskn. hefur nú lagt fram breytingartillögur við frv. í einum 19 liðum, allviðamiklar breytingar. (Gripið fram í: Minni háttar.) Ég vil enn fremur vekja athygli hv. þm. á því að það koma fljótlega kjarasamningar þar sem verður rætt um kaup og kjör við opinbera starfsmenn í ljósi þessara nýju leikreglna um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Ef eitthvað mikilvægt kemur upp í framhaldi af því sem kallar á breytingar á þessum leikreglum, þá verður að sjálfsögðu rætt um það og hlustað á það. En Alþingi er hér að sjálfsögðu að setja niður ákveðna stefnu sem það telur skynsamlega og það er hlutverk löggjafarvaldsins að setja leikreglurnar í samfélaginu.