Ólafur Örn Haraldsson:
Virðulegi forseti. Útvarpsrekstur á Íslandi býr við 11 ára gömul lög. Þau eru frá 1985. Á þessum 11 árum hefur orðið slík bylting í útvarpsrekstri á Íslandi að þeir heimar sem við þekkjum nú og voru fyrir 11 árum eru gerólíkir. Á þessum 11 árum hafa komið fram margar góðar einkastöðvar sem hafa rutt veginn, komið fram með nýjungar sem voru þarfar og svo sannarlega hefur Ríkisútvarpið heldur ekki látið sitt eftir liggja í nýjungum.
Það er því algerlega óviðunandi að Alþingi bjóði útvarpsrekstri að búa við þessi lög sem eru 11 ára gömul. Það er brýnasta verkefni Alþingis að snúa sér að því að setja ný lög, móta þá stefnu sem þarf að vera um útvarpsrekstur á Íslandi, ræða þá lagasetningu og setja. Í því efni þarf að sjálfsögðu að hafa öll þau sjónarmið sem til eru á Alþingi til hliðsjónar og það þarf sömuleiðis að leita út fyrir Alþingi eftir þeim sjónarmiðum sem utan þings eru því að útvarpið er ekki einkaeign alþingismanna, það er ekki einkaeign menntmrh. Það þarf að gefa sér góðan tíma og flana ekki að neinu og hafa þau sjónarmið að sjálfsögðu í fyrirrúmi að Ríkisútvarpið þarf að ná til allra landsmanna og hinna dreifðu byggða og hefur þar sérstakri skyldu að gegna því margir landsmenn hafa ekki að öðru að hverfa en Ríkisútvarpinu. Þá á ég líka við auglýsingar og að sjálfsögðu eiga allir Íslendingar rétt á að heyra auglýsingar. Það þarf að hafa sjónarmið menningar, uppeldis, íslenskrar tungu og varðveislu sögu til hliðsjónar, en hvergi er nútímasaga landsins betur varðveitt en einmitt hjá Ríkisútvarpinu.
Hér liggur fyrir skýrsla starfshóps menntmrh. Ég vil taka það skýrt fram að sú skýrsla er ekki samin í samráði við Framsfl. og þar kemur ekki fram sú stefna sem hefur verið samþykkt af Framsfl. þó svo að við kunnum að fallast á einhver þau atriði sem þar koma fram. Því miður er skýrslunni um mjög marga þætti ábótavant og hefur margt af því komið hér fram, þó svo að þar séu líka góð sjónarmið sem þarf að hafa til hliðsjónar þegar til endurskoðunar kemur. Við skulum ekki láta eins og þakið sé að fara af húsinu þótt skýrsla komi fram hjá starfshópi. Þetta er aðeins eitt sjónarmiðið. Það er að vísu þröngt, þykir nokkrum. Önnur sjónarmið eiga eftir að koma fram, m.a. hjá okkar framsóknarmönnum og öðrum sem hér eru í þingsölumog víðar að. Ég mun ræða við skýrsluhöfunda eða aðra í undirbúningi laganna þegar þar að kemur. En það er ferðahugur í menntmrh. Hann hefur skilið okkur framsóknarmenn eftir. Undanfarar hans hafa litið af sjónarhóli sem mér þykir nokkuð lágur, útsýnið takmarkað og fyrirheitnu löndin sem þeir sjá eru ekki þau sem ég sé, en vonandi náum við öll á leiðarenda. Það er mörgu ábótavant í Ríkisútvarpinu. Það er verið að laga þar reksturinn eftir skýrslu Ríkisendurskoðunar.
Rétt að lokum. Ég hafna því alfarið að taka auglýsingatekjur af Ríkisútvarpinu. Með því er sjálfstæði og sérstaklega fjárhagslegu sjálfstæði Ríkisútvarpsins lokið. Ekkert er mönnum, fréttamiðli og fjölmiðli mikilvægara en sjálfstæði, sérstaklega fjárhagslegt sjálfstæði.