Tölvuskráning símtala

Mánudaginn 13. maí 1996, kl. 15:05:14 (5912)

1996-05-13 15:05:14# 120. lþ. 136.1 fundur 300#B tölvuskráning símtala# (óundirbúin fsp.), dómsmrh.
[prenta uppsett í dálka] 136. fundur

[15:05]

Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):

Herra forseti. Ugglaust er það rétt hjá hv. þm. að skrá eins og þessari sem hér var gerð að umtalsefni fylgja ýmis álitaefni en það er einmitt hlutverk tölvunefndar að taka þau álitaefni til skoðunar og kveða upp úrskurði sína einmitt í þeim tilgangi að slá skjaldborg um verndun persónuupplýsinga á slíkum skrám í samræmi við lög. Í þessu tilviki hefur nefndin komist að skýrri niðurstöðu að teknu tilliti til þeirra hagsmuna sem í húfi eru.