Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson):
Virðulegur forseti. Ég er ekki sérfræðingur í þessum málum en ég skal gera mitt besta til þess að skýra sjónarmið mín.
Ég vil í fyrsta lagi benda á að vísitala framfærslukostnaðar eða vísitala neysluvöruverðs á samkvæmt kenningunni að vera hlutlaus mælikvarði, þ.e. mæla allt sem heil fjölskylda eða meðalfjölskylda eyðir í hvað sem er, það geti enginn lagt dóm á það hvað sé slæmt eða gott. Þannig mælist tóbak, vín, bíóferðir og hvað eina og það er ekki ætlunin að gera mun á þessari eyðslu hvort hún er góð eða slæm.
Við verðum einnig að muna eftir því að slíkar vísitölur eru notaðar sem mælikvarði. Lán taka t.d. breytingum ef vísitölur breytast. Fyrir vikið hlýtur að vera mikið hagsmunamál bæði fyrir lánardrottna og skuldunauta að þessi mælikvarði sé ekki breytilegur þannig að það er eins og við byggjum við sentimetramál þar sem 1 sm væri stundum 8 mm og stundum 12 mm. Ég er ansi hræddur um að smiðir sem eru að byggja hús vildu ekki hafa slíkt sentimetramál. Þess vegna held ég að það sé úrelt að fara þá leið sem hv. þm. er að stinga upp á. Ef menn vilja nota tóbaksverð til þess að koma í veg fyrir reykingar eiga menn bara að verðleggja tóbakið með þeim hætti sem þeim sýnist og sætta sig þá við að það hefur áhrif á vísitöluna því að auðvitað er annað óskynsamegt vegna áhrifa vísitölunnar á aðrar stærðir í þjóðfélaginu.