Tóbaksverð í vísitölu

Mánudaginn 13. maí 1996, kl. 15:48:01 (5944)

1996-05-13 15:48:01# 120. lþ. 136.1 fundur 307#B tóbaksverð í vísitölu# (óundirbúin fsp.), SF
[prenta uppsett í dálka] 136. fundur

[15:48]

Siv Friðleifsdóttir:

Herra forseti. Ég spyr hæstv. ráðherra: Getur ríkisvaldið ekki tekið tóbakið út úr vísitölunni og lækkað eitthvað annað í staðinn þannig að það yrðu engar breytingar á lánunum? Ég vil fá svar við því. Er það tæknilega ómögulegt? Já eða nei.