Lögræðislög

Þriðjudaginn 14. maí 1996, kl. 22:19:08 (6050)

1996-05-14 22:19:08# 120. lþ. 137.9 fundur 457. mál: #A lögræðislög# (sjálfræðisaldur) frv., Flm. GGuðbj (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 137. fundur

[22:19]

Flm. (Guðný Guðbjörnsdóttir):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til breytingu á lögræðislögum nr. 68/1984, með síðari breytingum, sem flutt er af þingkonum Kvennalistans, Guðnýju Guðbjörnsdóttur, Kristínu Ástgeirsdóttur og Kristínu Halldórsdóttur. Efni frv. er merkingarlega svo til samhljóma því frv. sem hér var mælt fyrir rétt áðan af hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur og ég vil taka undir hennar sjónarmið. Ég tel það vera merki um þá þróun sem er að eiga sér stað í þjóðfélaginu að tvö nær samhljóða frv. koma fram á sama tíma. Þessi mál eru núna rædd mjög víða bæði meðal lærðra og leikra.

Frv. gerir ráð fyrir að 1. gr. laganna orðist svo:

Einstaklingur er sjálfráða og fjárráða 18 ára, nema sviptur sé sjálfræði eða fjárræði. Sá sem er sjálfráða og fjárráða er lögráða.

Síðan er gert ráð fyrir að lög þessi öðlast þegar gildi.

Ég mun, herra forseti, fara að nokkru yfir í þá grg. sem er á þskj. 790 með nokkrum viðbótum og breytingum. Samkvæmt þessu frv. er sjálfræðisaldurinn hækkaður úr 16 árum í 18 og ég vil aftur vitna í 1. gr. barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna frá árinu 1989 sem Ísland fullgilti árið 1992. Þar segir: ,,Börn eru allt fólk í heiminum yngra en 18 ára.`` Skv. 1. gr. laga um vernd barna og ungmenna, nr. 58/1992, eru íslensk börn einstaklingar innan 16 ára aldurs en 16--18 ára einstaklingar kallast ungmenni. Í vinnuverndarlögunum er barn einstaklingur innan 16 ára aldurs, en ungmenni eru unglingar á aldrinum 16 og 17 ára. Þessi aðgreining og frávikið frá barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna skýrast að hluta til af því að samkvæmt núgildandi lögræðislögum, nr. 68/1984, verða íslensk börn sjálfráða 16 ára en fjárráða og lögráða 18 ára. Í 13. gr. barnalaga, nr. 20/1992, segir hins vegar að framfærsluskyldu ljúki er barn verður 18 ára. Þetta sýnir að í íslenskum lögum er ekki samræmi í því hvort hugtakið barn nær til 18 ára aldurs, eins og í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, eða aðeins til 16 ára aldurs. Til samanburðar má benda á að samkvæmt tilskipun Evrópusambandsins um vinnuvernd barna og ungmenna (ESB 94/33) merkir ungmenni einstaklingur undir 18 ára aldri, barn merkir einstaklingur sem er undir 15 ára aldri eða í skyldunámi og unglingur merkir einstaklingur sem er minnst 15 ára en hefur ekki náð 18 ára aldri og er ekki lengur í skyldunámi.

Ég vek athygli á þessu vegna þess að þessi tilskipun er nú til umræðu í félmrn. og því þurfum við greinilega að laga okkur bæði að alþjóðasáttmálum og því sem er að gerast á evrópskum vettvangi að þessu leyti. En svo virðist sem mismunandi skólaskyldualdur í Evrópusambandinu hafi áhrif á hve lengi börn kallast börn og hugtakið unglingur hefur lagalega skilgreiningu sem skarast við hugtakið ungmenni.

Í langflestum nágrannalanda okkar er sjálfræðisaldurinn nú 18 ár. Eftir lok miðalda var sjálfræðisaldur annars staðar á Norðurlöndunum hækkaður úr 12 árum í 25 og á seinni hluta 19. aldar var hann lækkaður í 21 ár. Á árunum 1968--1976 var sjálfræðisaldurinn á Norðurlöndum og í Englandi lækkaður úr 21 ári í 18 ár. Í Bandaríkjunum verða einstaklingar sjálfráða 18 ára. Það er löngu orðið tímabært að mati flutningsmanna að sjálfræðisaldurinn á Íslandi verði hækkaður í 18 ár, til samræmis við það sem tíðkast í nágrannalöndunum. Sjálfræðisaldur hefur haldist óbreyttur á Íslandi síðan árið 1281, þegar Jónsbók var lögfest. Og það mun reyndar eingöngu hafa átt við pilta, er mér tjáð. Síðan hafa þjóðfélagsaðstæður breyst mikið, ekki síst á undanförnum áratugum. Um leið hefur staða ungmenna innan fjölskyldunnar einnig breyst. Þetta kom skýrt fram í ræðum þingmanna um það mál sem rætt var á undan þessu. Aðstæður eru hreinlega allt aðrar nú en áður. Það er mjög erfitt fyrir 16--18 ára ungmenni að sjá fyrir sér sjálf í nútímaþjóðfélagi.

Í fyrstu lögræðislögunum sem sett voru hér á landi árið 1917 var 16 ára sjálfræðisaldrinum haldið frá ákvæðum Jónsbókar og þá var ekki gerður greinarmunur á kynjunum. Samkvæmt núgildandi lögræðislögum frá árinu 1985 er enn miðað við 16 ár. Ungmenni eru nú háðari foreldrum sínum efnahagslega en áður var raunin, með auknum kröfum um menntun og færni í nútímasamfélagi. Lengri skólaganga hefur almennt þýtt að ungmenni verða að treysta á að foreldrar sjái fyrir þeim lengur en áður tíðkaðist. Einnig hefur aukið atvinnuleysi á undanförnum árum gert það að verkum að atvinnuleysi meðal ungmenna hefur aukist verulega. Fjöldi þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá á aldrinum 15--19 ára hefur rúmlega tífaldast á árunum 1987--1994, þ.e. fjölgað úr 44 í 531. Þetta hefur haft þær afleiðingar að möguleikar barna og ungmenna til að standa á eigin fótum og vera efnahagslega sjálfstæð hafa minnkað. Hækkun sjálfræðisaldurs í 18 ár kemur til móts við þessar breytingar og tryggir réttarstöðu ungmenna á aldrinum 16--18 ára.

Ég vil einnig eins og flm. fyrra frv., hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir, minna á áskorun Barnaheilla sem einmitt ræddi þessi frv. eða þessar tillögur á sínu þingi fyrir skömmu þar sem eindregið var lagt til að tillögur sem þessi frv. taka á verði samþykkt.

Auk þess að samræma íslenska löggjöf og nágrannalandanna á þessu sviði og koma til móts við þjóðfélagsbreytingar eru helstu rök fyrir þeirri lagabreytingu sem hér er lögð til þrenns konar:

Í fyrsta lagi skal vísað í 12. gr. lögræðislaga, nr. 68/1984, en þar segir um sjálfráða mann: ,,Sjálfráða maður ræður einn öðru en fé sínu, nema lög mæli sérstaklega fyrir á annan veg.`` Þessi lagagrein gerir foreldrum erfitt að halda 16--18 ára ungmennum heima, ef þau vilja flytja burt eða vera úti að nóttu til. Þetta er misskilið frelsi að mati flutningsmanna þegar ungmenni getur ekki unnið fyrir sér eða fengið vinnu. Því þykir eðlilegra að foreldrar beri ríkari ábyrgð en þá að framfæra ungmennið og geti komið í veg fyrir að það flytji eða dveljist langdvölum að heiman án samþykkis foreldra. Þetta mundi einnig auðvelda allt eftirlit með skólagöngu 16--18 ára ungmenna þar sem kennurum bæri að hafa annars konar samskipti við foreldra þessa aldurshóps ef sjálfræði kæmi ekki til fyrr en við 18 ára aldur. Með hækkun sjálfræðisaldurs er réttarstaða ungmenna gagnvart foreldrum sínum gerð mun skýrari. Foreldrar fá meira vald til þess að setja unglingum takmörk, svo sem um útivistartíma o.fl. sem getur skipt sköpum í viðleitni þjóðfélagsins til að sporna gegn ,,unglingavandamálum``, m.a. fíkniefnaneyslu og almennu agaleysi.

Í öðru lagi segir um sjálfráða mann í 13. gr. sömu laga: ,,Sjálfráða maður verður ekki vistaður í sjúkrahúsi gegn vilja sínum.`` Þetta hefur þær afleiðingar að meðferð á ungum fíkniefnaneytendum reynist erfiðari en ella þar sem ungmennin geta útskrifað sig sjálf án samþykkis foreldra nema til forræðissviptingar komi. Af þessum sökum mun sú lagabreyting sem hér er lögð til auðvelda meðferð á ungum fíkniefnaneytendum, enda hafa meðferðaraðilar mælt með henni.``

Ég vil taka undir með hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur að hv. allshn. athugi hvort eitthvað sé til í því að ákvæði barnasáttmálans komi í veg fyrir að þetta geti orðið. Ég á mjög erfitt með að sjá það sjálf ... (Gripið fram í: Mannréttindasáttmálans.) --- Mannréttindasáttmálans, ekki barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. En ég mæli með því að hv. allshn. athugi það.

[22:30]

Í þriðja lagi öðlast ungt fólk á aldrinum 16--18 ára betri tryggingu fyrir því að geta verið í foreldrahúsum til a.m.k. 18 ára aldurs, enda gerist æ erfiðara að standa á eigin fótum á þessum aldri. Þessi breytta réttarstaða ungs fólks ætti einnig að gera stöðu þeirra skýrari gagnvart þjónustu ríkis og sveitarfélaga, t.d. á skemmtanasviðinu og varðandi skatta. Ef um erfiðar heimilisaðstæður er að ræða tryggja lögin um vernd barna og ungmenna að barn og ungmenni geti komist af heimili sé það talið því fyrir bestu. Og ég vil taka fram að þetta atriði kom einmitt til sérstakrar umræðu á áðurnefndu málþingi Barnaheilla og væri kannski rétt að huga að barnalögunum sérstaklega í þessu samhengi í hv. allshn.

Að mati flutningsmanna er það sjálfstæð ákvörðun, óháð lagabreytingunni sem hér er lögð til, hvort hækkun sjálfræðisaldurs hefur áhrif á skráð atvinnuleysi 16--18 ára ungmenna, það að hafa persónufrádrátt frá 16 ára aldri eða á það hvort barnabætur skulu greiddar til 18 ára aldurs. Þetta er vert að ítreka ekki síst vegna þess að þetta var töluvert rætt á þessu þingi. Fólk var að velta þessu fyrir sér og taldi rétt að athuga sjónarmið fleiri lögfræðinga. Ég hef þegar kynnt mér sjónarmið lögfræðinga sem telja að þetta séu óháðar ákvarðanir.

Lögleiðing tilskipunar Evrópusambandsins um vinnuvernd barna og ungmenna getur skipt máli í þessu sambandi þar sem hið almenna bann tilskipunarinnar tekur til ráðningar barna 16 ára og yngri í vinnu. Vinnuverndarákvæði tilskipunarinnar eiga við einstaklinga undir 18 ára aldri.

Flutningsmönnum frv. er ljóst að hækkun sjálfræðisaldurs hefur áhrif á merkingu annarra laga þar sem miðað er við að sjálfræðisaldurinn sé 16 ár. Í 29. gr. barnalaga segir að barn eigi rétt á forsjá foreldra sinna uns það verður sjálfráða og eru þeir forsjárskyldir við það. Þrátt fyrir þetta lýkur framfærsluskyldu við barn ekki fyrr en við 18 ára aldur skv. 13. gr. sömu laga. Þetta sýnir fyrst og fremst innbyrðis ósamræmi og tvískinnung í gildandi lögum sem hyrfi með lagabreytingunni sem hér er lögð til. Önnur lög sem snerta sjálfræðisaldurinn eru almenn hegningarlög, nr. 19/1940, lög um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir, nr. 25/1975, og lög um skotvopn, sprengiefni og skotelda, nr. 46/1977. Ekki er tekin afstaða til í þessu frv. hvort æskilegt sé að breyta þessum lögum en merking þeirra mun breytast. Þar sem nú er átt við 16 ára aldur mun þá væntanlega breytast í 18 ára aldur.

Herra forseti. Samantekið eru helstu rök fyrir þessari lagabreytingu þau að lögin taki mið af breyttum þjóðfélagsaðstæðum. Lögin verði í samræmi við það sem tíðkast í nágrannalöndum okkar, tryggi betur að ungt fólk búi við öryggi og aðhald foreldra til 18 ára aldurs og þau auðveldi meðferð á ungum fíkniefnaneytendum. Það er sannfæring okkar flutningsmanna að sú breyting sem hér er lögð til styrki réttarstöðu ungs fólks á aldrinum 16--18 ára og þessi styrking sé mun meira virði en sú ,,frelsisskerðing`` sem stundum er vitnað til. Það er ekki bara mat okkar flutningsmanna heldur almennt skoðun fólks í þjóðfélaginu að það sé mun og æ erfiðara fyrir ungt fólk á þessum aldri að standa á eigin fótum og það sé orðið tímabært að þjóðfélagið viðurkenni það og veiti þessum aldurshópi aukið aðhald og leiðsögn, bæði foreldrar og opinberir aðilar.

Virðulegi forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.