Vilhjálmur Egilsson:
Hæstv. forseti. Það er rétt að hafa hlutina í lagi báðum megin Tröllaskagans. Ég lýsi því yfir að ég greiði atkvæði með þessari tillögu. Eitt af því sem hefur verið mjög umtalað í þessari umræðu hefur verið að reyna að sá tortryggni þess efnis að veikindaréttur og fæðingarorlofsréttur væri í uppnámi. Það mun hins vegar koma í ljós við samþykkt þessa frv. að það mun enginn við samþykkt þess missa nokkurs hlutar í fæðingarorlofi né heldur í veikindarétti og ég hygg að málið muni þá fá enn meira fylgi en það hefur nú.