Upplýsingalög

Föstudaginn 17. maí 1996, kl. 10:35:21 (6155)

1996-05-17 10:35:21# 120. lþ. 139.1 fundur 361. mál: #A upplýsingalög# frv. 50/1996, GGuðbj (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 139. fundur

[10:35]

Guðný Guðbjörnsdóttir:

Herra forseti. Eins og kom fram í umræðum í gær þá er ég og hv. þm. Ögmundur Jónasson með fyrirvara á nefndaráliti vegna þess að okkur fannst ekki alveg skýrt að upplýsingar um laun yrðu tiltækar, þ.e. um persónulega kjarasamninga. Það er reyndar nokkuð hnykkt á þessu í nefndaráliti en ég er ekki alveg sannfærð um að upplýsingar um laun verði gefnar upp svo að ég hef kosið að sitja hjá við þessa grein.