Siv Friðleifsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Þetta frv. sem við fjöllum um hér er vegna ákvæðis í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Það skal alveg tekið skýrt fram. Ég vil lesa upp eina litla klausu úr áliti Lagastofnunar Háskóla Íslands vegna þess að hér er gert mikið úr því að ríkisvaldið sé að koma fram með frv. af þessu tagi. Þar segir, með leyfi forseta:
,,Samkvæmt þessu verndar stjórnarskrárákvæði sérstaklega rétt manna til að stofna félög, en girðir ekki fyrir að settar séu almennar reglur um starfsemi þeirra, enda brjóta þeir ekki í bága við megintilgang stjórnarskrárákvæðisins.``
Það er alveg ljóst að meiri hluti félmn. hefur lagt fram breytingartillögur sem koma mjög til móts við ábendingar stéttarfélaga. Frv. hefur breyst frá því að það kom upphaflega fyrir þingið. Það er búið að laga það mjög mikið. Ég held að allir hljóti að vera sammála um það. (ÖJ: Af hverju eru þá allir á móti því?)