Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Borist hefur eftirfarandi bréf:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Framsfl. í Reykjavík, Arnþrúður Karlsdóttir fréttamaður, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Finnur Ingólfsson, 7. þm. Reykv.``
Arnþrúður Karlsdóttir hefur áður tekið sæti á þingi og er hún boðin velkomin til starfa að nýju.