Spilliefnagjald

Mánudaginn 20. maí 1996, kl. 17:36:47 (6285)

1996-05-20 17:36:47# 120. lþ. 142.4 fundur 252. mál: #A spilliefnagjald# frv. 56/1996, Frsm. ÓÖH (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 142. fundur

[17:36]

Frsm. umhvn. (Ólafur Örn Haraldsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti um frv. til laga um spilliefnagjald. Fjöldi gesta kom fyrir umhvn. og ræddi við nefndina og umsagnir voru sömuleiðis skoðaðar, metnar og teknar til ítarlegrar skoðunar og umfjöllunar. Frv. fjallar um spilliefnagjald, þ.e. sérstakt gjald á vörur sem geta orðið að spilliefnum.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali. Hér verður gerð grein fyrir helstu efnisbreytingum sem lagðar eru til:

Í fyrsta lagi er lagt til að skýrt verði kveðið á um það í 1. gr. laganna að umhverfisráðherra fari með yfirstjórn mála þeirra er frv. fjallar um.

Í öðru lagi telur nefndin mikilvægt að helstu sjónarmið atvinnulífsins og almennings eigi greiðan aðgang að spilliefnanefndinni og verði það best tryggt með nefndarskipaninni. Til að þessu markmiði verði náð þykir nauðsynlegt að fjölga nefndarmönnum um einn. Því er lagt til að ráðherra skipi tvo nefndarmenn í stað eins áður.

Í þriðja lagi leggur nefndin til þá breytingu á 4. gr. að ráðherra skuli staðfesta samninga sem gerðir eru á grundvelli ákvæðisins að fengnum umsögnum spilliefnanefndar og Hollustuverndar ríkisins.

Í fjórða lagi eru lagðar til nokkrar breytingar á 7. gr. Lúta þær að því hvernig framkvæmd innheimtu spilliefnagjalds skal háttað. Þá er lagt til að bætt verði við frv. ákvæði sem hefur að geyma reglur um viðurlög.

Í fimmta lagi: Einnig er lagt til að bætt verði við frv. ákvæði um að lögin skuli endurskoða innan fimm ára frá gildistöku. Er sú tillaga gerð í ljósi þess að hér er um að ræða nýja gjaldtöku sem þarf að endurskoða í ljósi reynslunnar innan nokkurra ára. Þá er lagt til að ákvæði það sem mælir fyrir um skipan spilliefnanefndar skuli endurskoða að tveimur árum liðnum frá gildistöku laganna. Er tillagan lögð fram þar sem um nýja skipan er að ræða sem rétt þykir að meta að fenginni reynslu.

Í sjötta lagi: Loks er lögð til breyting varðandi gildistöku og framkvæmd laganna. Lagt er til að lögin öðlist þegar gildi en komi ekki til framkvæmda fyrr en 1. janúar 1997. Tímann fram að áramótum á að nota til undirbúnings og þannig er lagt til að spilliefnanefnd verði skipuð strax og lögin hafa öðlast gildi og skal nefndin hefja undirbúning að framkvæmd laganna.

Einstakir nefndarmenn áskilja sér rétt til að gera grein fyrir afstöðu sinni við umræður um málið og flytja eða fylgja breytingartillögum sem fram kunna að koma.

Ásta R. Jóhannesdóttir sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er samþykk því sem fram kemur í áliti þessu.

Nefndarmenn skrifa undir með þeim fyrirvara sem getið var um áðan og Hjörleifur Guttormsson með fyrirvara.